Honoring the Sacred Bean
Hæ, við erum Tinna og Jacob, hjón sem reka litla kakóvefverslun hér á Íslandi.
Við elskum kakó, ekki bara vegna bragðsins (þó það hjálpi auðvitað) heldur vegna þess sem það hefur gert fyrir líf okkar og þess sem við höfum séð það gera fyrir aðra. Við trúum því í einlægni að þessi planta búi yfir einhverju sérstöku, krafti sem getur haft áhrif á hvernig manni líður, hugsar og því sem maður mætir í lífinu.
Sagan okkar með kakó hófst óvænt.
Það var einn dimman íslenskan vetur, bíllinn var bilaður, lífið þungt og við bæði stödd á þessum stað sem margir þekkja þegar allt virðist einhvern veginn aðeins of mikið. Einhvern veginn enduðum við í kakóathöfn. Það var hvorki planað né fullkomið, bara eitt af þessum augnablikum sem verða samt.
Og satt að segja gerðist ekkert stórkostlegt í athöfninni sjálfri.
En eftir á hafði eitthvað breyst.
Við vorum léttari, opnari. Eins og lífsorkar hefði aðeins aukist innra með okkur. Lífið varð ekki skyndilega auðvelt, en það varð mýkra, rýmra og aðeins viðráðanlegra.
Þessi tilfinning sat eftir hjá okkur.
Af forvitni fórum við að kafa dýpra í heim kakósins, prófa mismunandi tegundir hvaðanæva úr heiminum, drekka það daglega og læra allt sem við gátum. Áður en við vissum af var ekki aftur snúið. Kakóið hafði smám saman orðið hluti af takti hversdagsins okkar.
Því meira sem við lærðum, því betur skildum við af hverju kakó hefur verið metið svo mikils í þúsundir ára og hvers vegna það er oft kallað ofurfæða í dag. Það getur stutt við orku og vellíðan, nært líkamann og fyrir marga skapað dýpri tengingu við sjálfan sig, aðra og lífið sjálft.
Og þannig varð Kakógull til.
Í grunninn er hugmyndin einföld: að deila einhverju sem hefur skipt raunverulegu máli í lífi okkar.
Í dag er markmið okkar að færa hágæða ceremonial kakó til Íslands, einn bolli í einu. Að deila einhverju sem getur gert lífið aðeins hlýrra, fyllra og tengt.
Með kærleik og kakógleði,
Tinna og Jacob
Tinna & Jacob
Cacao Guardians