Fróðleikshornið

Spurt & Svarað

Hvað er seremóníukakó?

Seremóníukakó er hreint, hágæða kakó unnið úr heilum kakóbaunum. Það er lítið unnið, engu bætt við og ekkert fjarlægt. Ólíkt venjulegu kakódufti eða hefðbundnu súkkulaði er seremóníukakó minna unnið og heldur náttúrulegri fyllingu, fitu og bragðeinkennum kakósins.

Lesa meira

Seremóníukakó er yfirleitt unnið úr baunum frá smærri ræktendum þar sem áhersla er lögð m.a. á gæði, vistvæna ræktun og virðingu fyrir náttúrunni.

Hvað er kakóseremónía?

Kakóseremónía er stund þar sem seremóníukakó er drukkið, oft með ásetningi í núvitund. Kakóseremóníur geta verið jafn ólíkar og þær eru margar, en það sem þær eiga sameiginlegt er að kakóið er drukkið sem hluti af upplifuninni.

Lesa meira

Hjá sumum felst kakóseremónía í kyrrð, öndun, hugleiðslu eða dagbókarskrifum, en hjá öðrum getur hún líka innihaldið tónheilun, hreyfingu, dans, samveru eða aðra leið til að tengjast sjálfum sér og augnablikinu. Nútíma kakóseremóníur snúast ekki um að endurskapa gamlar hefðir nákvæmlega, heldur um að tengjast kakóinu á þann hátt sem hefur merkingu í dag.

Kakóseremónía þarf ekki að vera flókin eða formleg; hún getur alveg verið þín eigin stund með kakóbolla, kyrrð og núvitund.

Hvaða kakó er best fyrir byrjendur?

Öll þau kakó sem við bjóðum upp á henta fyrir þá sem eru að byrja að drekka kakó. Kakóið frá Kólumbíu hefur verið saxað niður og því fljótlegt og þægilegt að blanda við heitan vökva. Maya blandan frá Gvatemala kemur í duftformi og kakóið hefur verið blandað við krydd og sætu.

Lesa meira

Er eitthvað sem kallar strax á þig? Kannski er það innsæið að segja þér hvað þú ættir að velja. Kakóin hafa öll mismunandi bragðprófíl og karakter. 

Kólumbía er með mjög gott súkkulaðibragð og gott jafnvægi í bragðprófíl.
Perú er mjög bragðmikið, aðeins gerjað bragð í bland við súkkulaði/mjólkur eða hnetukeim.
- Gvatemala er sérstök Maya blanda sem inniheldur krydd og sætu (panela sem er hreinasta formið af hrásykri)
Villta kakóið frá Bólivíu er tiltölulega milt og gott jarðar súkkulaðibragð.
Boundless Belize er mjög bragðgott, mjúkt og dökkt súkkulaðibragð. 
Mystical Mushroom er með dökkt og gott súkkulaðibragð í bland við smá jarðartóna frá sveppunum
Vibrant Vitality ber með sér bragð af ashwaghanda og túrmerik. 

Af hverju að drekka seremóníukakó?

Hreint kakó inniheldur steinefni eins og magnesíum og kalk í miklu magni og er magnesíumhlutfall þess hæst nokkurrar plöntu. Heilinn notar magnesíum, sérstaklega fyrir minni og einbeitingu en magnesíum er einnig gott fyrir hjartastarfsemi og blóðflæði.

Lesa meira

Í kakó er einnig járn, sink, fosfór og kalsín og fleira sem og fullt af andoxunarefnum eða meira en í t.d. eplum og bláberjum.
Kakó getur létt lundina, örvað sköpunargleði og jákvæðni. Það getur bæði verið mildur orkugjafi, stutt við hugleiðslu sem og haft róandi og slakandi áhrif.

Hér er linkur á blogg þar sem við förum nánar yfir eiginleika næringarefna í hreinu kakó.

Hvað set ég mikið kakó í bollann?

Það getur verið mismunandi eftir einstaklingum. Margir velja 10–30g í daglegan kakóbolla, en 35–42g fyrir kakóathöfn eða rólegri stund með meiri ásetningi.

Lesa meira

Meira kakó þýðir ekki sjálfkrafa dýpri upplifun. Fyrir suma getur jafnvel lítið magn verið mjög jarðtengjandi, nærandi og merkingarbært, sérstaklega þegar þess er notið með ásetningi.

Hversu mikið hentar þér best getur farið eftir næmi, líkamanum, hvort þú hafir borðað og aðstæðunum sem þú ert í. Ef þú ert að byrja að drekka seremóníukakó er oft best að byrja rólega og finna hvað hentar þér.

Hvenær tíma dags er best að drekka kakó?

Fyrir suma er kakó orkugjafi og þá er betra að drekka það að morgni eða fyrripart dags, sérstaklega ef þeir eru að leitast eftir einbeitingu eða mýkri og jarðtengdari orku en kaffi gefur.

Lesa meira

Fyrir aðra er það róandi og slakandi og þá í góðu að drekka það seinnipart dags eða að kvöldi. Sumum finnst gott að fá sér bolla seinna yfir daginn sem hluta af rólegri stund, hvort sem það felur í sér dagbókarskrif, hugleiðslu, slökun eða einfaldlega smá tíma fyrir sig sjálfa.

Upplifunin getur verið mismunandi eftir einstaklingum og því er enginn einn „réttur“ tími.

Það getur líka skipt máli hversu mikið kakó er sett í bollann, stærri skammtur getur verið meiri orkugjafi.

Ef þú ert ný/nýr í seremóníukakói er oft best að prófa það á mismunandi tímum og finna hvað hentar þér best.

Seremóníukakó (hreint kakó/cacao) vs kakóduft?

Seremóníu kakó er heil fæða, unnin úr hágæða heilum kakóbaunum án þess að bæta neinu við eða fjarlægja og með lágmarks vinnslu.

Lesa meira

Kakóduft fer aftur á móti í gegnum meiri vinnslu þar sem kakósmjörið er tekið frá kakóinu. Kakóduft er oft gert  úr kakóbaunum af lægstu gæðum sem eru gjarnan ristaðar við mjög háan hita, síðan afhýddar og malaðar. Þar á eftir fara þær í gegnum háþrýstiferli þar sem kakósmjörið er tekið úr kakóinu. 

Kakósmjör sem er besta fitan til þess að öll þau heilsubætandi næringarefni sem kakó inniheldur séu okkur aðgengileg.

Kakó í staðin fyrir kaffi?

Ef þú ert að leita að drykk í staðin fyrir kaffi getur seremóníukakó verið áhugaverður valkostur. Ólíkt kaffi, sem gefur oft snögga örvun sem getur fylgt fiðringur, oförvun eða orkudýfa, upplifa margir mýkri, jafnari og jarðtengdari upplyftingu við að drekka kakó.

Lesa meira

Það er ein af ástæðunum fyrir því að sífellt fleiri eru að uppgötva og prófa pseremóníukakó sem hluta af daglegri rútínu.

Seremóníukakó inniheldur náttúruleg efni sem geta stutt við einbeitingu, skýrleika, jafnvægi og vellíðan, án þess að hafa jafn harða eða rykkjótta virkni og koffín getur haft hjá sumum. Þar sem það er lítið unnin heil fæða upplifa margir það líka fyllra, nærandi og mýkra en aðra orkugjafa.

Fyrir þau sem vilja stöðugri orku og meðvitaðri byrjun á deginum getur seremóníukakó verið góður valkostur í staðin fyrir kaffi. Besta leiðin til að komast að því hvort það henti þér er einfaldlega að prófa og finna!

Hvernig er best að geyma kakóið?

Best er að geyma kakóið á köldum, þurrum stað og fjarri beinu sólarljósi. Gott er að hafa það í vel lokuðum umbúðum svo það haldi ferskleika sínum, ilm og bragði sem best.

Lesa meira

Forðastu raka og miklar hitasveiflur, þar sem það getur haft áhrif á gæði kakósins.

Ekki er nauðsynlegt að geyma kakó í kæli, og oft er betra að gera það ekki nema aðstæður séu mjög heitar, þar sem raki getur haft áhrif á áferðina. Við réttar aðstæður geymist seremóníukakóið vel og heldur sínum gæðum lengi.

Hvað get ég gert marga bolla úr einum pakka/poka?

Það fer alveg eftir því hversu mikið kakó þú notar í hvern bolla. Úr 450–500 g poka má yfirleitt gera um 12–16 fyllri bolla eða allt að 22–50 minni bolla.

Lesa meira

Sem gróf viðmiðun má segja að 450–500 g poki gefi um það bil:

  • 12–16 bolla ef þú notar 30–40 g í hvern bolla
  • 22–50 bolla ef þú notar 10–20 g í hvern bolla