100% hreint seremóníukakó
Lyftir, gefur orku & nærir hjartað 🤍
Styður við orku, vöðva og bein.
Náttúrulega fullt af andoxunarefnum.
Getur stutt við heilbrigða blóðrás.
Járnrík fæða úr jurtaríkinu.
Í kakói eru náttúruleg efni sem margir tengja við aukna vellíðan.
Gerðu kakóstundina enn notalegri með Palo Santo eða salvíu. Hreinsaðu rýmið, settu þér ásetning og skapaðu rólega og notalega stemningu í kringum kakóstundina.
Þessi fallegi vöndur af hvítri salvíu er þurrkaður og...
kr990
Næra líkaman, lyfta andanum & styrkja tengingu við okkur sjálf og umhverfið
Okkar upplifun er að kakó geti skapað eitthvað sérstakt; stundir sem færa okkur nær okkur sjálfum og öðrum, vekja gleði og gefa okkur rými til að hægja aðeins á.
Það er ein af ástæðunum fyrir því að KakóGull varð til. Markmið okkar er einfalt: að bjóða upp á hágæða ceremonial kakó á Íslandi á góðu verði og velja vörurnar okkar af kostgæfni, með virðingu fyrir fólkinu sem ræktar kakóið og náttúrunni.
Við viljum vita hvaðan kakóið okkar kemur og styðja við sanngjörn viðskipti, góða ræktunarhætti og samfélögin sem standa að baki því.
Það skiptir okkur máli að kakóið sé ekki aðeins gott á bragðið heldur að það sé framleitt af alúð og virðingu í gegnum allt ferlið.
Fyrir okkur er kakó meira en bara drykkur. Það getur verið hluti af daglegri rútínu, stund til að hægja á eða eitthvað sem við deilum með öðrum. Með KakóGull viljum við gera gott kakó aðgengilegra og um leið leggja okkar af mörkum svo við megum tengjast okkur sjálfum betur, hvert öðru og jörðinni.