Útbúðu þinn kakóbolla

Uppskriftir & innblástur

Hér fyrir neðan finnur þú fjölbreyttar uppskriftir til að útbúa kakó

Einfaldur kakóbolli

Þessi bolli getur einnig þjónað sem grunnur til að búa til flóknari kakóblöndur.

Lesa meira

Hráefni
20-40g hreint kakó
100-150ml vatn

Aðferð:
1. Hitaðu vatn í um 70°C.
2. Blandið kakó og vatni saman.
3. Drekktu hægt og njóttu.

Seremóníubolli

Þessi grunnuppskrift hentar vel þegar þú vilt gefa þér rými fyrir dýpri kakóstund í kyrrð með sjálfum þér, hugleiðslu, með dagbók eða í lítilli kakóseremóníu.

Lesa meira

Hráefni:
• 42g seremóníukakó
• 150-200ml vatn (70°C)

Aðferð:

  1. Hitið vatnið í um 70°C. (Forðist að sjóða kakóið)
  2. Blandið kakói og heitu vatni saman þar til drykkurinn verður silkimjúkur og froðukenndur.
  3. Hellið í uppáhalds bollann ykkar og gefið ykkur smá stund áður en þið drekkið.

Tillaga að einföldu ritúali:

Áður en þú tekur fyrsta sopann, haltu bollanum í höndunum og lokaðu augunum í nokkur andartök. Dragðu djúpt andann og finndu ylinn frá kakóinu.

Spurðu þig: 
Hvað vil ég bjóða inn í þessa stund? 
eða 
Hvað má mýkjast í mér í dag?
 

Settu einfaldan ásetning, drekktu síðan hægt og leyfðu kakóinu að styðja þig inn í ró, núvitund og sjálfsmildi.

Kryddað kakó

Einföld krydduð kakóblanda

Lesa meira

Hráefni

  • 10-30 g kakó
  • 100-150 ml heitt vatn (ekki sjóðandi)
  • ½-1 tsk hunang eða 1 daðla
  • Kanill
  • Cayenne pipar

Aðferð:
Blandið öllum hráefnunum saman með blandara, písk eða skeið.

Rósakakó

Hugljúf kakóblanda með rósatei fyrir slakandi & ilmandi upplifun.

Lesa meira

Hráefni

  • 15-20g kakó
  • 100-150ml rósate
  • 1 tsk kókosolía
  • 1 tsk hunang eða ein daðla
  • Vanilla
  • Salt

Aðferð:

  1. Hitaðu vatn og útbúðu rósate (laus rósablöð látin liggja í heitu vatninu í 5-7 mínútur).
  2. Sigtaðu teið og blandaðu því saman við hin hráefnin með blandara, písk eða skeið.

Lakkrískakó Bliss

Einstök blanda af kakói með lakkrískeim

Lesa meira

Hráefni

  • 20-30g kakó
  • 100-150ml vatn
  • 1 msk kókosrjómi
  • 1 tsk hlynsíróp
  • 1 stjörnuanís eða ½ tsk lakkrísrótarduft

Aðferð:

  1. Leggðu stjörnuanísinn í heitt vatn í 5-10 mínútur.
  2. Blandaðu kakóinu og öðrum hráefnum saman við heita vatnið og hrærðu þar til það er silkimjúkt.
  3. Helltu í bollann þinn og njóttu!

Silkimjúkur & seiðandi kakóbolli

Kremuð kakóblanda með möndlusmjöri og döðlum sem gerir bollann þykkan og djúsí.

Lesa meira

Hráefni

  • 20-30g kakó
  • 100-150ml vatn
  • ½-1 msk möndlusmjör
  • 1 tsk kókosolía
  • 1-2 döðlur
  • ¼ tsk kanill
  • Cayenne pipar
  • Vanilludropar
  • Salt

Valfrjálst aukalega:

  • 1 tsk hampfræ
  • 1 tsk lúcumaduft

Aðferð:

  1. Blandið öllum hráefnum saman í blandara þar til blandan er silkimjúk.
  2. Hellið í uppáhalds bollann ykkar.

Vibrant Vitality kakóbolli

Vibrant Vitality færir kakóbollanum dýpri karakter með maca, ashwagandha, túrmerik og svörtum pipar.

Lesa meira

Innihald

  • 10-30 g Vibrant Vitality kakó
  • 100-150 ml heitt vatn (ekki sjóðandi)
  • 1 tsk kókosolía
  • 1 msk kókosrjómi
  • 1 tsk hlynsíróp

Aðferð:
Blandið öllum hráefnum saman í blandara, með písk eða skeið.

Kryddaður seremóníubolli

Innblásinn af fornum kakóhefðum þar sem kakó var drukkið sem kraftmikill, beiskur og helgur drykkur, oft með vatni, kryddum og hita frá chili.

Lesa meira

Hráefni:

• 35–42g seremóníukakó
• 120–200ml vatn, um 70°C
• Smá cayenne eða chili
• 1/4 tsk kanill
• Örlítil klípa sjávarsalt
• Valfrjálst: 1/4 tsk kardimommur og/eða vanilla
• Valfrjálst: örlítið hunang eða hlynsíróp

Aðferð:

  1. Hitið vatnið í um 70°C.
  2. Blandið kakó, vatni, chili, kanil og salti saman þar til drykkurinn verður mjúkur og létt froðukenndur.
  3. Smakkið til. Bætið við smá sætuef þið viljið mýkri drykk, eða meiri chili ef þið viljið meiri hita.
  4. Hellið í bolla og drekkið í núvitund.