Skip to product information
1 of 9

𓍊𓋼 ImmuniBoost 𓋼𓍊 63g

𓍊𓋼 ImmuniBoost 𓋼𓍊 63g

Regular price kr4,392 ISK
Regular price kr5,490 ISK Sale price kr4,392 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknast við frágang á kaupum.

 

✓ LÍFRÆNT 

✓ PRÓFAÐ Á RANNSÓKNARSTOFU 

Þessi blanda af sveppum byggir á hefðbundinni notkun í ólíkum menningarheimum. Turkey Tail, Reishi og Phellinus hafa um aldir verið hluti af matar- og jurtamenningu þar sem lögð er áhersla á jafnvægi og vellíðan. Chaga hefur sérstaklega verið notaður í norðlægum löndum sem hluti af daglegri rútínu.*

Þessir sveppir eru lífrænt ræktaðir í hreinu, náttúrulegu umhverfi á sínu náttúrulega undirlagi – án sterkju, korns eða fylliefna. Eingöngu eru notuð sveppaldin (fruiting body).

Útdrátturinn er 1:1 vatnsútdráttur, unninn með hefðbundinni aðferð þar sem hráefnið er aldrei aðskilið frá útdrættinum.  

INNIHALD: 100% lífrænt Turkey Tail, Reishi, Phellinus & Chaga sveppaduft, sveppaaldin
BETA GLUCANS | 516mg í hverjum skammti

SKAMMTASTÆRÐ | 2 grömm, 31 skammtur í pokanum

✓ ALLTAF RÆKTAÐUR ÚTI Í ,,HOOP HOUSES” (tegund af gróðurhúsi), EKKI Á RANNSÓKNARSTOFU. 

✓ FER Í GEGNUM ÞREFALT ÖRYGGISPRÓF 

*Þessar upplýsingar byggja á hefðbundinni notkun og almennri fræðslu. Varan er ekki ætluð til greiningar, meðferðar eða lækningar sjúkdóma. Einstaklingsbundin reynsla getur verið mismunandi. 

🤍 RÆKTUN & VINNSLA 

Sveppirnir eru ræktaðir á vandlega völdum, næringarríkum náttúrulegum undirlögum sem eru sambærileg þeim sem þeir vaxa á í náttúrunni. Ræktun fer fram í gróðurhúsum og skyggingarskýlum með stöðugu loftflæði og hreinu lindarvatni.

Sveppirnir eru handtíndir og annaðhvort sólþurrkaðir eða varlega þurrkaðir áður en þeir eru unnir áfram

NOTKUN

Blandaðu 2 grömmum (um það bil 1 tsk) saman við kakó, kaffi, smoothie, súpu eða uppáhaldsréttinn þinn. Njóttu 1–3x á dag.

1:1 VATNSÚTRDÁTTUR

Vatnsútdráttur er hefðbundin aðferð sem notuð hefur verið til að vinna náttúrulegu efnin úr sveppum. Við þessa aðferð er þurrkaður sveppur malaður niður og soðinn í vatni við stjórnað hitastig. Hluti vatnsins er síðan látinn gufa upp þar til eftir stendur þykkni sem enn inniheldur allt sveppahráefnið.

Þetta þykkni er að lokum þurrkað í fínt duft.

AÐEINS SVEPPAALDIN - FRUITING BODY ONLY 

Mörg sveppaduft á markaðnum eru framleidd úr mycelium sem ræktað er á korn- eða sterkjuundirlagi. Í slíkum tilfellum fylgir undirlagið oft með í lokaafurðinni.

Í Mystic Mushroom línunni eru eingöngu notuð sveppaldin – sá hluti sveppsins sem vex ofan jarðar. Engin sterkja, ekkert korn og engin fylliefni eru notuð.


View full details