Villt Bólivíu, 100% hreint, lífrænt villt kakó - 450g

Afsláttarverð Verð kr7,990 Venjulegt verð Einingaverð  per 

Shipping calculated at checkout.

Villt kakó úr Amazon regnskógum Bólivíu

*FRÍTT að senda pantanir fyrir 19.500kr eða meira!*
Halda áfram að versla...

≈23 bollar 

  • 100% hreint og lífrænt úr kakóbaunum frá Bólivíu 

  • Villt kakó

  • Tillögur að notkun: Seremóníukakó eða aðrir ljúfir drykkir, út á grautinn, í smoothie, heimagert súkkulaði, bakstur eða eldamennskuna

  • Fairtrade

BRAGÐ
Villta Bólivíu kakóið er einstakt, en bragðið einkennist af blómlegum tónum í bland við jarðar-súkkulaðibragð. Áferðin á massanum er fíngerð. 

VILLT KAKÓ
Villta kakóið frá Bólivíu er einstakt en það vex án aðkomu mannfólksins í sínu villta upprunalega umhverfi í Amazon regnskóginum. Þegar það er tilbúið uppskera heimamenn það á hefðbundinn hátt, en það er síðan sólþurrkað og gerjað í skóginum. Regnskógurinn er verndaður gegn skógarhöggi og landnámi vegna villta kakósins þar sem sérstaða þess og mikil gæði tryggja stöðuga og góða innkomu fyrir heimamenn. Þar af leiðandi er náttúran vernduð en einnig vitundin um mikilvægi regnskógarins í sínu upprunalega formi. Öll vinnsla á kakóinu fer fram í Bólivíu.

AÐ ÚTBÚA KAKÓ
Einfaldast er að blanda saman heitu vatni og kakó. Einnig má blanda út í kryddum, jurtum, hnetusmjöri, ofurfæðu og fleiru (lesa nánar hér

15-25g kakó
100-200ml vatn 

- Hitaðu vatn (ekki sjóða svo næringarefni og góðir eiginleikar haldist í kakóinu) 
- Blandaðu kakói og vatni saman t.d. með skeið, freyðara eða í blandara
- Njóttu! 

Halda áfram að versla...

 

íslenska is