Skip to product information
1 of 7

𓍊𓋼 ProSporous 𓋼𓍊 63g

𓍊𓋼 ProSporous 𓋼𓍊 63g

Regular price kr4,392 ISK
Regular price kr5,490 ISK Sale price kr4,392 ISK
Útsala Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknast við frágang á kaupum.

 

✓ LÍFRÆNT 

✓ PRÓFAÐ Á RANNSÓKNARSTOFU 

Þessi samsetning sveppa er sett saman með áherslu á hefðbundna notkun og almenna vellíðan. Sveppirnir hafa verið notaðir í mismunandi menningarhefðum í tengslum við jafnvægi, orku og næringu líkamans.

Lion’s Mane hefur lengi verið hluti af matarhefðum þar sem áhersla er lögð á hugræna skýrleika. Cordyceps er þekktur fyrir notkun sína í tengslum við orku og úthald. Poria hefur verið notaður í austurlenskum hefðum sem hluti af jafnvægisnálgun líkamans. Tremella hefur verið notuð í mat og hefðum tengdum húð og raka. *

Þessir sveppir eru lífrænt ræktaðir í hreinu, náttúrulegu umhverfi á sínu náttúrulega undirlagi – án sterkju, korns eða fylliefna. Eingöngu eru notuð sveppaldin (fruiting body).

Útdrátturinn er 1:1 vatnsútdráttur, unninn með hefðbundinni aðferð þar sem hráefnið er aldrei aðskilið frá útdrættinum.  

INNIHALD: 100% lífrænt Cordyceps, Lion's Mane, Poria & Tremella sveppaduft, sveppaaldin
BETA GLUCANS | 516mg í hverjum skammti

SKAMMTASTÆRÐ | 2 grömm, 31 skammtur í pokanum

✓ ALLTAF RÆKTAÐUR ÚTI Í ,,HOOP HOUSES” (tegund af gróðurhúsi), EKKI Á RANNSÓKNARSTOFU. 

✓ FER Í GEGNUM ÞREFALT ÖRYGGISPRÓF 

*Þessar upplýsingar byggja á hefðbundinni notkun og almennri fræðslu. Varan er ekki ætluð til greiningar, meðferðar eða lækningar sjúkdóma. Einstaklingsbundin reynsla getur verið mismunandi. 

🤍 RÆKTUN & VINNSLA 

Sveppirnir eru ræktaðir á vandlega völdum, næringarríkum náttúrulegum undirlögum sem eru sambærileg þeim sem þeir vaxa á í náttúrunni. Ræktun fer fram í gróðurhúsum og skyggingarskýlum með stöðugu loftflæði og hreinu lindarvatni.

Sveppirnir eru handtíndir og annaðhvort sólþurrkaðir eða varlega þurrkaðir áður en þeir eru unnir áfram

NOTKUN

Blandaðu 2 grömmum (um það bil 1 tsk) saman við kakó, kaffi, smoothie, súpu eða uppáhaldsréttinn þinn. Njóttu 1–3x á dag.

1:1 VATNSÚTRDÁTTUR

Vatnsútdráttur er hefðbundin aðferð sem notuð hefur verið til að vinna náttúrulegu efnin úr sveppum. Við þessa aðferð er þurrkaður sveppur malaður niður og soðinn í vatni við stjórnað hitastig. Hluti vatnsins er síðan látinn gufa upp þar til eftir stendur þykkni sem enn inniheldur allt sveppahráefnið.

Þetta þykkni er að lokum þurrkað í fínt duft.

AÐEINS SVEPPAALDIN - FRUITING BODY ONLY 

Mörg sveppaduft á markaðnum eru framleidd úr mycelium sem ræktað er á korn- eða sterkjuundirlagi. Í slíkum tilfellum fylgir undirlagið oft með í lokaafurðinni.

Í Mystic Mushroom línunni eru eingöngu notuð sveppaldin – sá hluti sveppsins sem vex ofan jarðar. Engin sterkja, ekkert korn og engin fylliefni eru notuð.

sveppir duft til sölu

View full details