Lífrænar kakónibbur 113 g
Lífrænar kakónibbur 113 g
Couldn't load pickup availability
Þessar lífrænu kakónibbur eru ljúffeng viðbót við skyr, hafragraut, þeytinga, heimagert súkkulaði og eftirrétti. Þær eru unnar úr gerjuðum kakóbaunum sem eru ristaðar varlega í litlum skömmtum til að draga fram ríkulegt súkkulaðibragð og náttúrulegan hnetukeim.
Hreint kakóbragð, mildur hnetukeimur og dásamlega stökk áferð.
100% lífrænar kakónibbur, án viðbætts sykurs, sætuefna eða annarra aukaefna.
Hvað gerir þessar kakónibbur sérstakar?
Kakóbaunirnar koma frá fjölskyldubýlum í Rwenzori-fjöllunum í Úganda, þar sem lögð er áhersla á lífræna ræktun og líffræðilega fjölbreytni.
Eftir gerjun eru baunirnar ristaðar við lágan hita, afhýddar og brotnar niður í litla, stökka bita. Heitið virkjaðar kakónibbur(Activated Cacao Nibs) vísar til þessarar mildu ristunar, en ekki spírunar.
Framleiðandinn lætur einnig óháðar rannsóknarstofur mæla þungmálma í kakóinu. Skoða upplýsingar um þungmálmamælingar.
Hvernig er best að nota kakónibbur?
Skyr og hafragrautur: Stráðu þeim yfir morgunmatinn fyrir stökka áferð og súkkulaðikeim.
Þeytingar: Blandaðu þeim út í þeytinga eða stráðu yfir þeytingaskálar.
Heimagert súkkulaði: Bættu þeim út í súkkulaði fyrir aukið bragð og stökka áferð.
Bakstur og eftirréttir: Notaðu þær í smákökur, brúnkur, múslí eða sem skraut á ís.
Beint úr pokanum: Njóttu þeirra hreinlega eins og þær eru!
Prófaðu þetta: Skyr með banana, hnetusmjöri, örlitlu hunangi og kakónibbum. Einfalt og ótrúlega gott!
Vöruupplýsingar
Innihald: 100% lífrænar kakónibbur
Magn: 113 g
Uppruni: Rwenzori-fjöllin, Úganda
Bragð: Ríkulegt, ósætt kakóbragð með mildum hnetukeim
Vinnsla: Gerjaðar, létt ristaðar og afhýddar kakóbaunir
Lífræn vottun: Organic Certifiers, samkvæmt framleiðanda
Athugið: Kakónibbur bráðna ekki eins og kakómassi og henta því ekki einar og sér til að útbúa hefðbundinn kakódrykk.
Deila

- 5 stars: 1 (100%)
- 4 stars: 0 (0%)
- 3 stars: 0 (0%)
- 2 stars: 0 (0%)
- 1 star: 0 (0%)
Þetta eru bestu kakónibbur sem ég hef smakkað! Þær eru ótrúlega bragðgóðar og ferskar, með svo skemmtilega stökkri áferð án þess að vera þurrar eða harðar. Ég elska að setja þær út á chiagrautinn minn eða bæta þeim í smoothie. Algjört uppáhald!