Uplifting Uganda
Uplifting Uganda
Couldn't load pickup availability
Leyfðu þessu kakói að fylla þig gleði og hlýju. Það ber með sér djúpan og öruggan takt úr Semuliki-regnskóginum – gróskumiklum hitabeltisskógi við rætur Rwenzori-fjallanna, þar sem landamæri Kongó og Úganda mætast og upptök ánnar Níl eiga sér stað.
Kakóið er ræktað af samfélagi bænda þar sem konur eru í meirihluta og leggja í ræktunina styrk sinn, visku og anda. Flestir bændanna eru undir 35 ára aldri og með þessu kakói er stutt við lífvænlega framtíð og kraftmikla unga kynslóð.
Okkar upplifun er að í þessu kakói býr kraftur sem getur stutt við innri styrk og stöðugleika – líkt og forn taktur sem ómar undir fjallinu.
Bragðið er klassískt og hlýtt, með mjúkum súkkulaðitónum sem minna á kakó úr æsku, súkkulaðifudge og trufflur.
STÆRÐ
453g (~20-25 bollar)
INNIHALD
Lífrænar kakóbaunir frá Úganda
AÐ ÚTBÚA KAKÓ
Einfaldast er að blanda saman heitu vatni og kakó. Einnig má blanda út í kryddum, jurtum, hnetusmjöri, ofurfæðu og fleiru (lesa nánar hér)
15-25g kakó
100-200ml vatn
- Hitaðu vatn (ekki sjóða svo næringarefni og góðir eiginleikar haldist í kakóinu)
- Blandaðu kakói og vatni saman t.d. með skeið, freyðara eða í blandara
- Njóttu!
Halda áfram að versla...
Deila
